„Við getum byggt brýr milli ólíkra sjónarmiða“
22. maí 2026
Ljósmynd: EFI.
Forseti boðar til samtals um framtíðina.

Forseti ásamt hópnum sem hittist á Bessastöðum.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, bauð fjölbreyttum hópi fólks til óformlegs fundar á Bessastöðum þar sem rætt var um hvernig ýta mætti undir samtal þjóðarinnar um stöðu okkar og framtíðarsýn. Í hópnum voru fulltrúar almannaheillasamtaka, fulltrúar framhalds- og háskólanema og fólk með fjölþætta reynslu, meðal annars af skipulagningu stórra funda.
Frá því að forseti tók við embætti hefur hún lagt áherslu á samtal kynslóðanna og að virkja ungt fólk til góðra verka. Hún hefur einnig rætt um að fjörutíu ára afmæli leiðtogafundarins í Höfða 11. október sé áminning um gildi samtalsins við mótun framtíðarinnar. Í nýársávarpi sínu í janúar sagði hún meðal annars:
„Þessi fundur [í Höfða] minnir okkur á að þótt við séum fámenn þjóð getum við byggt brýr milli ólíkra sjónarmiða og skapað vettvang samtals sem skiptir máli. Á komandi tímum skulum við byggja upp samfélag sem stendur vörð um mannlega reisn, eflir traust og tryggir öllum tækifæri til að vaxa og dafna. Framtíðin er ekki eitthvað sem einfaldlega gerist, hún er veruleiki sem við mótum saman.“
Í upphafi fundarins á Bessastöðum ræddi forseti stuttlega um þær áherslur sem hún hefur lagt í embætti og áhuga sinn á að efna til víðtækara samtals meðal landsmanna. Þátttakendur höfðu margt til málanna að leggja í því efni en ákveðið var að halda umræðum áfram og móta betur þær hugmyndir sem reifaðar voru á fundinum.
Fleiri fréttir

27. maí 2026
„Líðan barna er mælikvarði á heilbrigði samfélagsins“
Forseti í samtali við framkvæmdastjóra UNICEF.
27. maí 2026
„Líðan barna er mælikvarði á heilbrigði samfélagsins“

26. maí 2026
Rætt um jafnréttismál og græna orku
Forseti hittir bandarískar öldungadeildarþingkonur.
26. maí 2026
Rætt um jafnréttismál og græna orku

26. maí 2026
„Leikhúsið er griðastaður“
Forseti afhendir heiðursverðlaun Grímunnar.
26. maí 2026
„Leikhúsið er griðastaður“