Handritin skoðuð
8. október 2024
Forsetahjón og konungshjón heimsækja Árnasafn í Kaupmannahafnarháskó...

Annette Lassen rannsóknarprófessor fræðir forsetahjón og konungshjónin um sagnaarfinn sem handritasafn Árna Magnússonar hefur að geyma. Ljósmynd: Mads Frost



Forsetahjón heimsækja Árnasafn við Kaupmannahafnarháskóla í fylgd með Friðriki X. Danakonungi og Mary drottningu.
Á safnið komu einnig Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Christina Egelund, mennta- og vísindamálaráðherra Danmerkur, sem undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um handritasafn Árna Magnússonar. Yfirlýsingin kveður á um leiðir til að auka þekkingu á handritunum og efla áframhaldandi samstarf og samvinnu landanna um varðveislu þeirra. Viðburðurinn var liður í tveggja daga ríkisheimsókn forseta Íslands til Danmerkur.
Sjá einnig myndasafn frá ríkisheimsókn til Danmerkur.
Fengu að skoða öryggishvelfinguna
Handritasafn Árna Magnússonar er einstakt á heimsvísu og hefur að geyma heimildir sem eru að miklu leyti undirstaða að miðaldasögu Norðurlanda. Handritasafnið er varðveitt í tveimur söfnum í tveimur löndum, í Árnasafni í Kaupmannahöfn og á Árnastofnun í Reykjavík. Handritasafnið var í heild sinni sett á sérstakan varðveislulista UNESCO árið 2009 sem kallast Minni heimsins sem undirstrikar mikilvægi þess fyrir heimsbyggðina.
Forsetahjón og konungshjón fengu kynningu á safninu og sagði Annette Lassen, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, viðstöddum frá sagnaarfinum sem þau varðveita og sagði frá efnisþáttum í Njáls sögu. Þá fengu þjóðhöfðingjarnir og makar þeirra einnig að skoða öryggishvelfinguna þar sem handritin eru varðveitt.
Á undanförnum árum hafa Ísland og Danmörk unnið að leiðum til þess að gera handritaarfinum hærra undir höfði. Nánar má lesa um efni viljayfirlýsingarinnar á vefsíðu menningar-og viðskiptaráðuneytisins.
Fleiri fréttir

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar