„Matur segir svo margar sögur“
27. september 2026
Ljósmyndir: Birgir Ísleifur.
Forsetahjón sækja hátíðina Matur og menning.









Forsetahjón sóttu hátíðina Matur og menning sem Efling - stéttarfélag stóð fyrir í félagsheimili sínu við Guðrúnartún. Á boðstólum var fjölbreytt úrval rétta sem félagsfólk Eflingar hafði lagað. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, tók á móti forsetahjónum og sagði hún dýrmætt að fá tækifæri til að kynna menningu, hefðir og matargerð félagsfólks fyrir þeim.
Þetta er í fjórða sinn sem efnt er til þessarar hátíðar en meðal markmiða hennar er að fagna þeim mikla fjölbreytileika sem einkennir félaga Eflingar sem koma frá yfir 140 löndum. Meðal kræsinga að þessu sinni voru heilsteikt svín að filippseyskum hætti, vorrúllur frá Víetnam og sjávarréttasúpa frá Hondúras.
„Matur segir svo margar sögur – um uppruna, fjölskyldur, hefðir og heimili – og hefur einstakt lag á að tengja okkur saman,“ sagði forseti að heimsókninni lokinni. „Það var ekki síður dýrmætt að heyra sögurnar á bak við réttina og eiga góð samtöl við fólkið sem tók á móti okkur. Ég fór södd heim og mun fróðari en þegar ég kom.”
Fleiri fréttir

19. nóvember 2026
Veljum íslenskuna
Stiklur úr dagbók forseta.
19. nóvember 2026
Veljum íslenskuna

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“