Forysta fyrir framtíðina

„Forysta snýst um að axla ábyrgð gagnvart samferðafólki og komandi kynslóðum.“

Forysta fyrir framtíðina er eitt af lykilviðfangsefnum í samtali forseta Íslands á heimaslóðum og alþjóðavettvangi. Á tímum örra breytinga, tækniframfara, loftslagsáskorana og alþjóðlegrar óvissu þarf forystufólk að temja sér ný vinnubrögð og hugsunarhátt. Leiðtogar, hvar í sveit sem þeir eru settir, þurfa að hafa hugrekki til að takast á við flókin úrlausnarefni, auðmýkt til að hlusta og læra og samkennd til að skilja ólíka reynslu og sjónarmið.
Forseti Íslands hefur lagt áherslu á að forysta sé ekki bundin við stöðu eða titil, heldur birtist í ábyrgð, frumkvæði og vilja til að leggja sitt af mörkum. Hún felur í sér að taka ákvarðanir sem standast ekki aðeins tímans tönn heldur þjóna heildarhagsmunum samfélagsins til lengri tíma litið.
Í samtölum sínum við ungt fólk, atvinnulíf, fræðasamfélagið og alþjóðlega samstarfsaðila hvetur forseti til forystu sem byggir í senn á skýrum gildum og opnum huga. Slík forysta leitast við að byggja brýr fremur en múra, efla samstöðu fremur en að valda sundrungu og skapa skilyrði fyrir sjálfbærri og réttlátri framtíð.






