Ákall um ábyrga forystu
12. október 2026
Ljósmyndir: Pétur Fjeldsted.
Hópur leiðtoga tekur þátt í samtali í Höfða.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og forseti Slóveníu, Nataša Pirc Musar, heilsast á tröppum Höfða.





Hægt er að styðja við Ákall frá Reykjavík (A Call from Reykjavík) á sérstakri vefsíðu.
Lesa ákallið.
Hópur alþjóðlegra leiðtoga tók síðdegis í gær þátt í samtali í Höfða. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, bauð til samtalsins í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá því að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhail Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, áttu samtal þar um afvopnun og frið. Samtal leiðtoganna í gær snerist að nýju um frið og afvopnun en einnig leiðir til að draga úr þeim ógnum sem felast í hraðri þróun gervigreindar og minnkandi virðingu fyrir alþjóðalögum og alþjóðastofnunum. Í Höfða var jafnframt mótað ákall um ábyrga forystu.
Gestgjafi í Höfða var Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Auk forseta og borgarstjóra voru þátttakendur í samtalinu Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu; Mary Robinson, fyrrverandi forseti Írlands og fyrrverandi mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna; Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna; Izumi Nakamitsu, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í afvopnunarmálum; bandaríska öldungardeildarþingkonan Lisa Murkowski; Christiane Amanpour, fréttastjóri alþjóðafrétta hjá CNN; Ester Baiget, forstjóri Novonesis; Tristan Harris, annar stofnenda Center for Humane Technology, Hindou Oumarou Ibrahim, aðgerðasinni á sviði umhverfismála; Pat Mitchell, stofnandi TEDWomen; Jean Oelwang, meðstofnandi Virgin Unite; Charles Oppenheimer, stjórnandi The Oppenheimer Project; Aza Raskin, annar stofnenda Center for Humane Technology og Leah Seligmann, forstjóri The B-Team.
Samtal hópsins hófst klukkan 16:00 og stóð í rúmar tvær klukkustundir. Rætt var um hvernig leiðtogar samtímans gætu lagt sitt af mörkum til friðar, aukins trausts og ábyrgari þróunar gervigreindar. Í kjölfar samtalsins undirrituðu forseti Íslands, forseti Slóveníu og fv. forseti Írlands ákall frá Reykjavík sem fleirum verður boðið að taka undir.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar