„Við leyfðum okkur að dreyma um framtíðina“
15. apríl 2026
Ljósmyndir: Eyþór Árnason.
Tvíhliða fundur forseta Slóveníu og forseta Íslands á Bessastöðum.

Forseti Íslands býður forseta Slóveníu velkomna til Bessastaða.



Forseti Slóveníu, Nataša Pirc Musar, átti tvíhliða fund með forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur í bókhlöðunni á Bessastöðum klukkan 10 í morgun. Þær ræddu um samskipti landanna tveggja, þróun heimsmála og þær leiðir sem leiðtogar, ekki síst kvenleiðtogar, hafa til að láta gott af sér leiða, bæði á heimaslóðum og á alþjóðavettvangi.
Í kjölfarið funduðu þær með sendinefndum landanna tveggja og lögðu þar drög að frekara samstarfi sín á milli. „Við leyfðum okkur að gera nokkuð á fundi okkar áðan sem er of fátítt í alþjóðlegu samstarfi,“ sagði forseti Íslands við það tækifæri. „Við leyfðum okkur að dreyma um framtíðina, þá framtíð sem við viljum taka þátt í að skapa.“
Forseti Slóveníu tók undir þau orð og lýsti yfir mikilli ánægju með samræður þeirra. „Við eigum margt sameiginlegt sem manneskjur og leiðtogar og leggjum áherslu á svipuð atriði í embætti.“ Hún sagðist sjá mikla möguleika í samstarfi þeirra á næstu misserum, helst með fleiri kvenleiðtogum og leiðtogum smærri þjóða. Báðar vilja þær m.a. rækta lýðræðislegt samtal, leita lausna við loftslagsbreytingum og standa vörð um velsæld og framtíðarhorfur ungs fólks.
Heimsókn Nataša Pirc Musar til Íslands er skipulögð í tengslum við árlegt Velsældarþing (Wellbeing Economy Forum) sem fram fer í Reykjavík 16. og 17. apríl. Kl. 16.00 í dag taka forsetarnir þátt í viðburði í Veröld — húsi Vigdísar sem er opinn almenningi. Þær eiga þar samtal undir yfirskriftinni „Kærleiksríkt hugrekki: Forystuhlutverk í breyttum heimi” („The Courage to Care: Leadership in a Changing World“).
Fleiri fréttir

2. september 2026
Bláa lónið og Alfreð Gíslason heiðruð á Bessastöðum
Forseti afhendir Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026.
2. september 2026
Bláa lónið og Alfreð Gíslason heiðruð á Bessastöðum

31. ágúst 2026
Sólrík söngstund á Bessastöðum
Stiklur úr dagbók forseta.
31. ágúst 2026
Sólrík söngstund á Bessastöðum

28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs
Forseti sendir Hákoni VIII samúðarkveðjur vegna andláts Haraldar V.
28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs