Riddarar kærleikans

„Í samfélagi okkar eru ótal dæmi um riddara kærleikans, sjálfboðaliða sem leggja á sig ómælda vinnu fyrir aðra.“

Forseti efndi til samtals á Bessastöðum í byrjun september 2024 með ungu fólki og ýmsum aðilum sem láta sig málefni barna og ungs fólks varða. Kveikja fundarins var ákall aðstandenda Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem hafði látið lífið í kjölfar hnífaárásar á Menningarnótt í Reykjavík skömmu fyrr, um að heiðra minningu hennar með því að gera kærleikann að öflugasta aflinu í íslensku samfélagi. Í kjölfarið varð Minningarsjóður Bryndísar Klöru til og einnig óformleg hreyfing sem kallast Riddarar kærleikans. Tilgangurinn er að hvetja sem flesta til að lyfta kærleikanum með skapandi hætti og auka þannig samkennd og samvinnu í samfélaginu.
Riddarar kærleikans hafa staðið fyrir fjölda kærleikssamtala, fjölbreyttum uppákomum og fjáröflun. Hreyfingin hefur einnig stutt ötullega við minningarsjóð Bryndísar Klöru sem styður við almannaheillaverkefni sem miða að því að vernda börn gegn ofbeldi. Sjóðurinn hefur veitt styrki til fræðslu, rannsókna og verkefna til að koma í veg fyrir að slíkar hörmungar endurtaki sig. Forseti er verndari sjóðsins og hreyfingarinnar og leggur áherslu á að kærleikurinn er val og að allir geti valið að vera Riddarar kærleikans.






