„850 börn í bíó – það er ekki amalegur áhorfendahópur!“
26. september 2026
Ljósmyndir: Franska sendiráðið, Benedek Regoczi, Heiða Helgadóttir og Ásdís Birgisdóttir.
Stiklur úr dagbók forseta.

Frá minningarathöfn um áhöfn Pourquoi-Pas? í Fossvogskirkjugarði. Með forseta á myndinni eru Anne Manipoud-Charcot og Marie-Gaëlle Robles sendiherra.



Forseti hefur verið viðstödd fjölda ólíkra viðburða í Reykjavík á liðnum vikum. Hún tók þátt í minningarathöfn um áhöfn franska rannsóknarskipsins Pourquoi Pas? í Fossvogskirkjugarði og hitti forystufólk erlendra sjávarklasa í móttöku við Grandagarð. Einnig sótti hún opnunarviðburði UngRIFF í Smárabíói og gæddi sér á alþjóðlegum kræsingum á hátíðinni Matur og menning í félagsheimili Eflingar við Guðrúnartún.
Í þessum mánuði eru 90 ár síðan franski landkönnuðurinn Jean Baptiste Charcot fórst við Íslandsstrendur ásamt áhöfn rannsóknarskipsins Pourquoi Pas? Af því tilefni skipulagði franska sendiráðið röð viðburða í Reykjavík og á Mýrum, skammt frá þeim stað þar sem skipið sökk í september 1936. Forseti var viðstödd minningarathöfn um áhöfnina í Fossvogskirkjugarði þriðjudaginn 15. september. Meðal þeirra sem þar tóku til máls voru franski sendiherrann, Marie-Gaëlle Robles, og Anne Manipoud-Charcot, afkomandi Jean-Baptiste Charcot.
Viku síðar, þriðjudaginn 22. september, þáði forseti boð í móttöku sem Sjávarklasinn efndi til fyrir forystufólk dótturklasa sinna, sem eru 11 talsins og staðsettir víða um heim – allt frá Mexíkó og Fiji-eyja til Skotlands og Svíþjóðar. Forseti átti samtöl við hópinn, meðal annars um hvernig samvinna, hugvit og þekkingarmiðlun geta skapað ný tækifæri. „Hafið skilur okkur ekki aðeins að – það tengir okkur líka saman,“ sagði hún af þessu tilefni. „Og það er sérstaklega ánægjulegt að sjá íslenskt hugvit verða að alþjóðlegu samstarfi um betri og sjálfbærari nýtingu þessarar sameiginlegu auðlindar.“
Miðvikudaginn 23. september tók forseti þátt í opnunarhátíð UngRIFF sem er kvikmyndahátíð ætluð börnum á aldrinum 4 til 16 ára. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá 2023 í tengslum við alþjóðlegu kvikmyndahátíðina RIFF. Við þetta tækifæri veitti forseti Eddu Björgvinsdóttur heiðursverðlaun UngRIFF árið 2026 fyrir ómetanlegt framlag til barnamenningar. „850 börn í bíó – það er ekki amalegur áhorfendahópur!“ sagði forseti í lok dags. „Dásamleg morgunstund … þar sem við ræddum töfra kvikmyndanna, ímyndunaraflið og mikilvægi þess að þora að skapa.“
Meðal annarra viðburða sem forseti hefur sótt undanfarið má nefna 60 ára afmæli Menntaskólans í Hamrahlíð og 100 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands. Haldið var upp á báða þessa áfanga með veglegri dagskrá laugardaginn 26. september, annars vegar í Hamrahlíð og hins vegar í Hörpu.
„Kannski er það einmitt í samtakamættinum sem öryggi skapast,,“ sagði forseti meðal annars í ávarpi sem hún flutti á afmælishátíð Landhelgisgæslunnar.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“

12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu
Hópur leiðtoga tekur þátt í samtali í Höfða.
12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu

11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“
Forseti tekur þátt í lokaviðburði Samtals í Hörpu.
11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“