Bláa lónið og Alfreð Gíslason heiðruð á Bessastöðum
2. september 2026
Ljósmyndir: Sigurjón Ragnar.
Forseti afhendir Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026.

Árni Sigurjónsson, formaður stjórnar Íslandsstofu, Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins og Grímur Sæmundsen, stjórnarformaður Bláa Lónsins, ásamt forseta.



Ítarlegri umfjöllun um Útflutningsverðlaunin er á vef Íslandsstofu.
Sjá nánar.
Forseti afhenti Útflutningsverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Komu þau í hlut Bláa lónsins, í annað skipti á þessari öld. Einnig hlaut Alfreð Gíslason handknattleiksþjálfari heiðursviðurkenningu fyrir einstakt starf á alþjóðavettvangi. Hann á að baki langan þjálfaraferil erlendis og er sem stendur landsliðsþjálfari Þýskalands.
Í ávarpi sínu á athöfninni sagði Árni Sigurjónsson, formaður úthlutunarnefndar, það vera sérstaklega ánægjulegt að Bláa lónið skyldi nú hljóta verðlaunin í annað sinn en þau hlaut fyrirtækið fyrst árið 2004. „Fyrri verðlaunin voru viðurkenning á eftirtektarverðri uppbyggingu og árangri við að koma ungri íslenskri starfsemi á kortið. Verðlaunin í dag staðfesta að sá árangur var ekki stundarfyrirbrigði. Bláa lónið hefur haldið áfram að vaxa, þróa nýjar vörur og þjónustu, efla rannsóknir og byggja upp sterka stöðu á alþjóðlegum markaði.“
Árni gerði einnig grein fyrir heiðursviðurkenningunni til Alfreðs Gíslasonar og sagði meðal annars: „Ferill Alfreðs ber vott um einstaka fagmennsku, leiðtogahæfni og árangur. En áhrif Alfreðs verða ekki eingöngu metin í titlum og verðlaunapeningum. Hann hefur verið brautryðjandi íslenskra þjálfara erlendis og átt stóran þátt í að opna þeim dyr að stærri verkefnum um allan heim, bæði með félagsliðum og landsliðum. Íslenskir handknattleiksþjálfarar á erlendri grundu eru nú það margir að þeir þyrftu eiginlega sérstakt tollnúmer svo hægt væri að mæla áhrif þeirra í útflutningstölum.“
Útflutningsverðlaunin voru nú veitt í 38. skipti. Tilgangur þeirra er að vekja athygli á þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar og alþjóðlegra viðskipta og heiðra þá sem hafa náð sérstaklega góðum árangri í sölu og markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu erlendis. Heiðursviðurkenningin var fyrst veitt árið 2011 og kemur hún í hlut einstaklings sem þykir með starfi sínu hafa borið hróður Íslands víða um heim.
Fleiri fréttir

31. ágúst 2026
Sólrík söngstund á Bessastöðum
Stiklur úr dagbók forseta.
31. ágúst 2026
Sólrík söngstund á Bessastöðum

28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs
Forseti sendir Hákoni VIII samúðarkveðjur vegna andláts Haraldar V.
28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs

27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings
Ruslan Stefanchuk, forseti Úkraínuþings, í opinberri heimsókn á Íslandi.
27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings