Fundað með páfa og forseta Ítalíu
4. maí 2026
Ljósmyndir: Páfastóll og Embætti forseta Ítalíu.
Forseti fer í vinnuferð til Rómar.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, er í vinnuferð í Róm. Í dag, mánudaginn 4. maí, á hún einkafund með Leó XIV páfa í Vatíkaninu. Að því loknu fundar hún ásamt íslenskum embættismönnum með Pietro Parolin kardinála, æðsta embættismanni páfastóls.
Forseti á einnig í dag fund með forseta Ítalíu, Sergio Mattarella, í Quirinale-höllinni í Róm. Að loknum fundi þeirra snæða forsetarnir hádegisverð saman.
Á morgun, þriðjudaginn 5. maí, heimsækir forseti Íslands norrænu menningarmiðstöðina Circolo Scandinavo í Róm. Miðstöðin hefur það hlutverk að kynna norræna menningu og listir fyrir Ítölum og einnig eru þar listamannaíbúðir fyrir norrænt listafólk.
Lokaviðkomustaður forseta á morgun eru höfuðstöðvar Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme). Um er að ræða stærstu stofnun Sameinuðu þjóðanna á sviði matvælaaðstoðar og fæðuöryggis. Hún er einnig áherslustofnun í mannúðarstarfi Íslands og vinna íslensk stjórnvöld m.a. með henni að tvíhliða þróunarsamvinnu.
Fleiri fréttir

11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“
Forseti tekur þátt í lokaviðburði Samtals í Hörpu.
11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“

10. október 2026
Samtal fer fram um land allt
Forseti ávarpar þátttakendur um land allt.
10. október 2026
Samtal fer fram um land allt

9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar
Forseti tekur þátt í viðburði með Tristan Harris og Raskin-hjónum.
9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar