Forsetahjón heimsækja Húsavík og taka þátt í Mærudögum
24. júlí 2026
Forseti afhendir Frímanni Sveinssyni viðurkenningu Norðurþings 2026.

Forsetahjónin ásamt Bergþóri Bjarnasyni, sveitarstjóra og Guðrúnu Huld Gunnarsdóttur, verkefnastjóra Mærudaga.


Forsetahjónin heimsóttu Húsavík á dögunum þar sem þau kynntust mannlífi, menningu og atvinnustarfsemi bæjarins ásamt því að taka þátt í setningu Mærudaga, árlegri bæjarhátíðar Húsvíkinga.
Við komuna til Húsavíkur tóku Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, og Kjartan Páll Þórarinsson, formaður byggðaráðs, á móti forsetahjónunum. Á fundi með fulltrúum sveitarfélagsins fengu þau innsýn í starfsemi Norðurþings og þau verkefni sem efst eru á baugi á svæðinu.
Forsetahjónin heimsóttu einnig Dvalarheimili aldraðra á Húsavík þar sem þau ræddu við íbúa og starfsfólk, og Hvalasafnið þar sem þau kynntu sér sögu hvalveiða og hvalaskoðunar á Íslandi, sem og mikilvægi hafsins fyrir byggðina.
Forsetahjónin fóru einnig í hvalaskoðun á Skjálfanda, nutu útivistar á flóanum og nátturufegðurðar svæðisins sem hefur gert Húsavík að einni fremstu hvalaskoðunarhöfn Evrópu. Þau röltu einnig um hafnarsvæðið, heimsóttu brugghúsið Húsavík Öl og kíktu í kaffi á nokkrum heimilum þar sem þau ræddu daginn og veginn, samfélagið og framtíðarsýn íbúanna fyrir svæðið.
Um kvöldið tóku forsetahjónin þátt í setningu Mærudaga þar sem fjöldi heimamanna og gesta kom saman á Hafnarstétt. Bergþór Bjarnason sveitarstjóri setti hátíðina formlega og forseti veitti Frímanni Sveinssyni, viðurkenningu sem listamanni Norðurþings 2026, fyrir framlag hans til lista- og menningarlífs á svæðinu.
Frímann hefur, samhliða löngum ferli sínum sem matreiðslumaður, ræktað myndlistina af mikilli ástríðu og lagt samfélaginu mikið til með tónlist sinni og í tvo áratugi glatt íbúa á dvalarheimili aldraðra með reglulegum söngstundum.
Fleiri fréttir

14. ágúst 2026
Ríkisheimsókn forsetahjóna til Eistlands
Fjölbreytt dagskrá í Tallinn 19.-21. ágúst.
14. ágúst 2026
Ríkisheimsókn forsetahjóna til Eistlands

11. ágúst 2026
Bandarískur læknir sæmdur fálkaorðu
Forseti sæmir Stanton Perry riddarakrossi fyrir starf í þágu hjartveikra barna.
11. ágúst 2026
Bandarískur læknir sæmdur fálkaorðu

10. ágúst 2026
Nýr sendiherra Bandaríkjanna
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. William H. Long.
10. ágúst 2026
Nýr sendiherra Bandaríkjanna