Forsetahjón á ferð um Austurland
25. júlí 2026
Forsetahjón taka þátt í Bræðslunni og Flugi og fákum.

Forsetahjón ásamt Dagmar Ýr Stefánsdóttur, sveitarstjóra Múlaþings.




Forsetahjón heimsóttu Austurland dagana 24.-25. júlí þar sem þau kynntu sér menningarlíf, náttúru og atvinnustarfsemi svæðisins ásamt því að hitta íbúa og fulltrúa sveitarfélaga.
Við Stuðlagil tók Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, á móti forsetahjónunum og kynnti þeim eitt þekktasta náttúruundur Austurlands. Þaðan lá leiðin til Borgarfjarðar eystri þar sem þau heimsóttu Hafnarhólma og skoðuðu lundabyggðina sem laðar að sér þúsundir gesta á hverju sumri.
Á Borgarfirði eystri kynntu forsetahjónin sér atvinnulíf svæðisins með heimsókn til Fiskverkunar Kalla Sveins og hittu heimamenn við Fjarðarborg, nýuppgert húsnæði sveitarfélagsins sem gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu.
Heimsóknirnar gáfu þeim tækifæri til að ræða við íbúa um daglegt líf, uppbyggingu og framtíðarsýn sveitarfélagsins.
Forsetahjón sóttu síðan Bræðsluna, eina þekktustu tónlistarhátíð landsins. Þar hittu þau skipuleggjendur hátíðarinnar auk listafólks og gesta sem voru saman komin til að njóta tónlistar og samveru. Bræðslan hefur um árabil verið mikilvægur menningarviðburður og tákn um kraft og samstöðu á Borgarfirði eystri.
Síðasta dag ferðarinnar heimsóttu hjónin Vök við Urriðavatn og kynntu sér þá ferðaþjónustuuppbyggingu sem átt hefur sér stað á svæðinu. Að því loknu snæddu þau hádegisverð á Egilsstöðum áður en þau tóku þátt í flug- og fornbílahátíðinni Flugi og fákum sem fram fór á Egilsstaðaflugvelli.
Fleiri fréttir

14. ágúst 2026
Ríkisheimsókn forsetahjóna til Eistlands
Fjölbreytt dagskrá í Tallinn 19.-21. ágúst.
14. ágúst 2026
Ríkisheimsókn forsetahjóna til Eistlands

11. ágúst 2026
Bandarískur læknir sæmdur fálkaorðu
Forseti sæmir Stanton Perry riddarakrossi fyrir starf í þágu hjartveikra barna.
11. ágúst 2026
Bandarískur læknir sæmdur fálkaorðu

10. ágúst 2026
Nýr sendiherra Bandaríkjanna
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. William H. Long.
10. ágúst 2026
Nýr sendiherra Bandaríkjanna