Fagnaðarfundir þegar forseti hitti Bertel Thorvaldsen
5. maí 2026
Ljósmyndir: EFÍ.
Forseti heimsækir Circolo Scandinavo í Róm.

Marie Kraft segir forseta og fylgdarliði frá starfsemi Circolo Scandinavo.


Forseti heimsótti norrænu menningarmiðstöðina Circolo Scandinavo á Aventino-hæðinni í Róm. Heimsóknin var hluti af vinnuferð forseta til Ítalíu. Forseti rakst þar á kunnuglegt málverk af íslensk-danska listamanninum Bertel Thorvaldsen.
Ísland á aðild að Circolo Scandinavo, samfélagi norrænna listamanna sem á rætur sínar að rekja til ársins 1860 þegar norrænu bókasöfnin í borginni ákváðu að koma þar á fót athvarfi fyrir Norðurlandabúa. Í rúmlega 160 ár hafa listamenn úr ýmsum greinum haft þar aðstöðu til að vinna að verkum sínum. Meðal þekktra gesta eru Bertel Thorlvaldsen, August Strindberg, Henrik Ibsen, Selma Lagerlöf og Sigrid Undset.
Marie Kraft forstöðukona Circolo Scandinavo, Jóna Hlíf Halldórsdóttir stjórnarmaður og Ingólfur Árnason fv. forstöðumaður voru meðal þeirra sem tóku á móti forseta og fylgdarliði í menningarmiðstöðinni og kynntu starfsemina. Forseti sagði einstaklega ánægjulegt að sjá hve öflugt og varanlegt samstarf Norðurlandanna væri í ítölsku höfuðborginni. Það kom henni líka skemmtilega á óvart að sjá þar samskonar málverk af Bertel Thorvaldsen og hangir í anddyri Bessastaðastofu. Málverkið er eftir Émile Jean-Horace Vernet.
Í máli Marie Kraft kom fram að árlega sækja yfir 300 norrænir listamenn um dvöl í Circolo Scandinavo og fá um 60 þeirra styrk til eins eða tveggja mánaða dvalar. Miðstöðin tekur jafnframt virkan þátt í menningarlífi Rómar með viðburðum og sýningum. Einn stærsti viðburðurinn á vegum miðstöðvarinnar, að sögn Kraft, er samnorræn kvikmyndahátíð sem skipulögð er árlega í samstarfi við norrænu sendiráðin.
Norræna kvikmyndahátíðin í Róm fer jafnan fram á haustdögum. Á síðustu hátíð var kvikmynd Rúnars Rúnarssonar Ljósbrot meðal þeirra mynd sem þar voru sýndar.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

4. maí 2026
Dýrmæt vináttubönd Íslands og Ítalíu
Forseti Íslands fundar með Sergio Mattarella, forseta Ítalíu.
4. maí 2026
Dýrmæt vináttubönd Íslands og Ítalíu

4. maí 2026
Samtal um frið
Forseti fundar með Leó XIV páfa og Pietro Parolin kardínála.
4. maí 2026
Samtal um frið

4. maí 2026
Fundað með páfa og forseta Ítalíu
Forseti fer í vinnuferð til Rómar.
4. maí 2026
Fundað með páfa og forseta Ítalíu