„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
28. október 2026
Ljósmyndir: Ellý Sól Kalandia og
Stiklur úr dagbók forseta.

Krisztina G. Agueda, aðalskipuleggjandi minningarhátíðarinnar, og László Benkucs ræðismaður tóku á móti forsetahjónum í Hlégarði.







Ávarp forseta á minningarhátíð Ungverska menningarfélagsins er aðgengilegt í heild hér á vefnum.
Skoða.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, flutti í liðinni viku ávarp á minningarathöfn sem var haldin í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá byltingunni í Ungverjalandi og komu ungverskra flóttamanna til Íslands. Fór athöfnin fram í Hlégarði í Mosfellsbæ en flóttamannahópurinn dvaldi þar í upphafi dvalar sinnar hér árið 1956. Forseti tók einnig þátt í dagskrá á árlegu kótelettukvöldi Samhjálpar og kom fram í þættinum „Við felldum múrana“ sem var á dagskrá RÚV í tilefni af 50 ára afmæli Þroskahjálpar.
Aðfaranótt aðfangadags árið 1956 lenti flugvélin Gullfaxi á Íslandi með 52 ungverska flóttamenn innanborðs. Var þetta í fyrsta sinn sem Íslendingar tóku á móti hópi flóttafólks erlendis frá með skipulögðum hætti. Koma hópsins var afleiðing af því að sovésk stjórnvöld börðu með harðri hendi niður byltingu sem brotist hafði út í Ungverjalandi 23. október þetta sama ár.
Í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá þessum viðburðum bauð Ungverska menningarfélagið á Íslandi til minningarhátíðar í samstarfi við bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ og Rauða krossinn. Dagskráin hófst með opnun sögusýningar í Hlégarði en síðan voru flutt ávörp og leikin tónlist. Loks var boðið til hátíðarkvöldverðar með ungverskum réttum. Meðal þeirra sem tóku til máls, auk forseta, voru László Benkucs ræðismaður Ungverjalands hérlendis og Sigríður Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins. Í ávarpi sínu sagði forseti meðal annars:
„Mér finnst fallegt að hugsa til þess að á sama tíma og Íslendingar voru að halda hátíðleg jólin hafi þessi hópur verið að stíga fyrstu skrefin í átt að nýju lífi. Og ég velti því fyrir mér hvað hafi verið þeim efst í huga. Söknuður eftir þeim sem urðu eftir? Óttinn við hið óþekkta? Eða kannski, þrátt fyrir allt, vonin um að hér gætu þau fundið öryggi og nýja heimahöfn. Því heimahöfn, eins og ég skil það orð, er ekki aðeins staðurinn sem við komum frá. Hún getur líka verið sá staður þar sem einhver tekur á móti okkur, réttir fram hjálparhönd og segir: Hér átt þú heima.
Ungverska byltingin árið 1956 var barin niður af mikilli hörku. Um 200 þúsund manns flúðu land, fleiri en allir Íslendingar voru á þeim tíma. Við eigum væntanlega erfitt með að sjá fyrir okkur að öll íslenska þjóðin sé skyndilega rekin á flótta og þurfi að leita á náðir annarra. En þess eru alltof mörg dæmi að þúsundir einstaklinga standi nákvæmlega í þeim sporum. Þegar slíkt gerist er mikilvægt að muna að á bak við hverja tölu er manneskja, líf sem breyttist á einni nóttu. Og þessi manneskja tilheyrir fjölskyldu sem getur á einu andartaki liðast í sundur. Þó að ungverska byltingin hafi verið barin niður lifði frelsisþráin áfram. Og það er heldur ekkert einsdæmi. Því frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra; þau eru réttindi okkar allra og mynda kjarna í brjósti okkar allra.“
Í liðinni viku voru forsetahjón einnig meðal gesta á kótelettukvöldi almannaheillafélagsins Samhjálpar sem haldið var á hótel Hilton Reykjavík. Slík kvöld eru árleg fjálöflunarleið fyrir samtökin. Þekkt tónlistarfólk kom fram auk þess sem skjólstæðingar Samhjálpar sögðu frá reynslu sinni. Forseti flutti ávarp við þetta tækifæri og sagði meðal annars:
„Samhjálp er einstaklega fallegt orð. Það minnir á að ekkert okkar kemst í gegnum lífið án þess að þurfa einhvern tíma á öðrum að halda. Við þurfum öll að finna að einhver sjái okkur, hlusti á okkur og rétti okkur hjálparhönd þegar á reynir. Og stundum þarf ekki mikið til: Hlýtt orð, bros, samtal, eða einfaldlega að setjast niður og deila máltíð. … Á Kaffistofu Samhjálpar eru bornar fram yfir hundrað þúsund máltíðir á ári. En þar er ekki aðeins verið að seðja hungur. Þar er líka boðið upp á hlýju, mannleg tengsl og samfélag. Í Hlaðgerðarkoti fær fólk stuðning til að takast á við fíknivanda og finna nýja fótfestu í lífinu. Og á áfanga- og stuðningsheimilum Samhjálpar fær fólk liðsinni við að stíga næstu skref. Fátt skiptir jafnmiklu máli og að eiga sér skjól. Að finna að maður tilheyri. Og að vita að þótt eitthvað í lífinu hafi farið öðruvísi en ætlað var, þá er alltaf von um nýtt upphaf.“
Afmælisþáttur Þroskahjálpar, „Við felldum múrana“, var á dagskrá RÚV 20. október. Þátturinn hófst á viðtali Jónu Rósu Hjartardóttur og Steinunnar Ásu Þorvaldsdóttur við forseta. Hún sagðist hafa fylgst vel með réttindabaráttu fatlaðs fólks fyrir hálfri öld í gegnum móður sína sem starfaði á Kópavogshæli. Forseti fagnaði þeim margháttuðu umbótum sem orðið hefðu í umönnun fatlaðs fólks og auknum réttindum þess si´ðan en sagði jafnframt að aldrei mætti sofna hér á verðinum. „Við getum alltaf gert betur í því að leyfa fleirum að blómstra.“
Afmælisþátturinn Þroskahjálpar er aðgengilegur á vef RÚV. Viðtal Jónu Rósu Hjartardóttur og Steinunnar Ásu Þorvaldsdóttur við forseta er í byrjun þáttarins.
Skoða
Fleiri fréttir

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“