„Gerum heiminn að griðastað“
11. október 2026
Ljósmyndir: EFÍ og Pétur Fjeldsted.
Forseti tekur þátt í lokaviðburði Samtals í Hörpu.

Forseti flutti opnunarávarp viðburðarins í Hörpu og þakkaði þar þeim mörgu sem lagt höfðu hönd á plóg við skipulagningu Samtalsins.




Upptaka frá lokaviðburði Samtals í Hörpu er aðgengileg á YouTube.
Sjá nánar.
Forseti Íslands, fulltrúar ungs fólks og íslenskir kórar tóku þátt í kynningu á afrakstri verkefnisins Samtals í Hörpu. Gervigreind, samfélagsmiðlar og framtíð menntunar voru þátttakendum Samtalsins ofarlega í huga.
Hundruðir Íslendinga settust niður síðdegis í gær víða um land til að ræða um spurninguna: Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Afrakstrinum var miðlað á viðburði í Hörpu milli kl. 14.00 og 15:00. Fjöldi fólks sótti viðburðinn og honum var einnig streymt.
Forseti flutti opnunarávarp og þakkaði þar öllum sem tekið höfðu þátt í Samtalinu og eins þeim stóra hópi sjálfboðaliða og samtaka sem lögðu hönd á plóg til að gera verkefnið að veruleika. Hún sagði meðal annars:
„Í aðdraganda Samtalsins sem fram fór í gær hef ég oft sagt að vonin vaxi með virkri þátttöku. Í dag vil ég bæta við að vonin vex líka þegar við veljum samtal í stað sundrungar, þegar við leggjum sameiginlega rækt við kærleika og frið. Þótt við sem hér búum séum ólík og sjáum heiminn með ólíkum augum eigum við öll sömu heimahöfn – samfélagið sem við byggjum saman og berum sameiginlega ábyrgð á.“
Þessu næst kynntu Embla Bachmann, Kári Einarsson og Lísa Margrét Gunnarsdóttir afrakstur Samtalsins. Í máli þeirra kom fram að gervigreind, samfélagsmiðlar og menntun hefðu verið þátttakendum ofarlega í huga en að einnig hefðu margir rætt um mikilvægi þess að setjast niður með öðrum til að skiptast á skoðunum.
Sex kórar tóku þátt í dagskránni: Skólakór Kársness, Stúlknakór Reykjavíkur, kammerkórinn Aurora, Barnakórinn við Tjörnina, Fjallabræður og Karlakór Reykjavíkur. Á efniskrá kóranna voru „Þakkarbæn“, „Heimahöfn“ og „Dona nobis pacem“ en dagskránni lauk á áhrifaríkum flutningi allra kóranna á lagi Johns Lennon, „Imagine“, í íslenskri þýðingu Þórarins Eldjárns sem ber titilinn „Að hugsa sér“.
Hugmyndin að verkefninu Samtal varð til við borðstofuborðið á Bessastöðum á liðnu vori og er forseti Íslands verndari þess. Meðal þeirra sem lagt hafa hönd á plóginn við undirbúning eru Samtal - félag til almannaheilla, Bandalag íslenskra skáta, UMFÍ, Félag framhaldsskólanema, Skólameistarafélag Íslands, Landssamband íslenskra stúdenta, Riddarar kærleikans, Heimili og skóli, ráðuneyti, stofnanir og einstaklingar.
Fjölbreytt samantekt á niðurstöðum Samtals er aðgengileg á vef verkefnisins.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

10. október 2026
Samtal fer fram um land allt
Forseti ávarpar þátttakendur um land allt.
10. október 2026
Samtal fer fram um land allt

9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar
Forseti tekur þátt í viðburði með Tristan Harris og Raskin-hjónum.
9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag