Góðir gestir frá Kanada
3. mars 2026
Ljósmyndir: EFÍ.
Forseti fundar með Francis Scarpaleggia.



Forseti fundaði með Francis Scarpaleggia, forseta fulltrúadeildar kanadíska þingsins, á Bessastöðum. Scarpaleggia er hér á landi ásamt kanadísku þingmönnunum Steeve Lavoie, Alexis Brunelle-Duceppe og Blaine Calkins en í för með þeim var einnig Jenny Hill, sendiherra Kanada á Íslandi.
Kanadíska sendinefndin er meðal annars að kynna sér nýtingu Íslendinga á umhverfisvænum orkugjöfum, þar með talið jarðhita, og bar það efni á góma í samtali forseta og Scarpaleggia. Þau ræddu einnig stöðu alþjóðamála og sterk söguleg og pólitísk tengsl Íslands og Kanada.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar