Konungur sem helgaði líf sitt þjónustu við þjóð sína
10. september 2026
Ljósmyndir: Norska utanríkisráðuneytið.
Forsetahjón viðstödd útför Haraldar V Noregskonungs.

Líkfylgd Haraldar V Noregskonungs gekk eftir Karl Jóhannsgötu í miðborg Oslóar.


Myndir frá ríkisheimsókn forsetahjóna til Noregs eru aðgengilegar hér á vefnum.
Skoða myndir.
Forsetahjón voru viðstödd opinbera útför Haraldar V Noregskonungs í Osló í gærdag, 9. september. Dagskráin hófst á því að kistu konungs var ekið frá kapellunni í konungshöllinni yfir í dómkirkju Oslóar þar sem útförin fór fram. Að henni lokinni var kistan flutt yfir í Akerhus kastalakirkjuna þar sem konungur var lagður til hinstu hvílu. Fjöldi erlendra þjóðhöfðingja og gesta var viðstaddur útförina, þar á meðal sænska konungsfjölskyldan, danska konungsfjölskyldan og forseti Finnlands, Alexander Stubb.
Líkfylgd konungs gekk eftir Karl Jóhannsgötu á leið til dómkirkjunnar í mildu veðri í gærmorgun. „Þegar við gengum á eftir kistunni ríkti djúp þögn,” skrifaði forseti Íslands í færslu á samfélagsmiðlum í lok dagsins. „Fjöldi fólks hafði safnast saman á götum úti og í langa stund virtust allir sameinast í kyrrðinni – í virðingu og þakklæti fyrir konung sem helgaði líf sitt þjónustu við þjóð sína. Hvíl í friði.”
Þess má geta að forsetahjón fóru í ríkisheimsókn til Noregs dagana 8. til 10. apríl 2025 og tókust þá góð kynni með þeim og norsku konungsfjölskyldunni. Gestgjafar þeirra voru Haraldur V konungur og Sonja drottning ásamt núverandi konungi, Hákoni VIII og Mette-Marit drottningu. Í viðtali við Ríkisútvarpið, daginn sem tilkynnt var um andlát Haraldar V, rifjaði forseti upp þessa heimsókn og sagði meðal annars:
„Þarna er fallinn frá afskaplega góður þjóðhöfðingi sem þjóðinni þótti vænt um. Ég skynjaði líka að okkur utan landamæranna þótti sérstaklega vænt um hann og sannarlega á það við um mig. Þetta var einstaklega vitur, hlýr maður með góða kímnigáfu sem sinnti þjóð sinni vel og var elskaður af henni.”
Um kímnigáfu konungs sagði forseti ennfremur: „Það var svo fallegt í hans fari. Við vorum að ræða flókin mál, flókna stöðu í heiminum, áskoranir, en einhvern veginn var stutt í brosið og hláturinn og mennskuna og ég fann það svo hvað hans einlæga ást á sinni þjóð var honum alltaf efst í huga. Ég fann líka fyrir þessari ást í garð Íslendinga.”
Forsetahjón er aftur væntanleg frá Noregi til Íslands síðdegis í dag.
Fleiri fréttir

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.
3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“

2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“
Forseti sækir afmælishátíðir þriggja framhaldsskóla.
2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“