Kveðjustund á Íslandstorgi
21. ágúst 2026
Ljósmyndir: Embætti forseta Eistlands.
Lokadagur ríkisheimsóknar til Eistlands.

Frá gagnkvæmnismóttökunni á Radison-hótelinu í Tallinn.








Forsetahjón, Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, luku þriggja daga ríkisheimsókn til Eistlands í dag. Forseti tók þátt í vígslu endurnýjaðs Íslandstorgs framan við byggingu utanríkisráðuneytisins í Tallinn. Þá kvöddu forsetahjón og fylgdarlið gestgjafa sína, forseta Eistlands, Alar Karis, og eiginkonu hans, Sirje Karis.
Um miðjan dag í gær efndu forsetahjón til gagnkvæmnismóttöku í veislusal Radison Collection hótelsins í Tallinn. Til hennar var boðið eistneskum ráðamönnum, opinberum sendinefndum og viðskiptanefndum beggja landa og öðrum sem tóku þátt í dagskrá heimsóknarinnar. Forseti Íslands ávarpaði samkomuna og þakkaði þeim mörgu sem lögðu hönd á plóginn við að gera heimsóknina jafn ánægjulega og gefandi og raun bar vitni. Hún ræddi líka um dýrmæta vináttu landanna tveggja og vitnaði í því sambandi í þekkt erindi úr Hávamálum sem endar á hendingunni: „Auðugur þóttist er annan ég fann, maður er manns gaman.“ Síðan sagði hún:
„Tengsl og vinátta eru forsenda þess að við blómstrum. Í heimi sem einkennist af óvissu og togstreitu skiptir vinátta, sem byggist á trausti og reglufestu, stöðugt meira máli. Við skulum því skála hér í dag fyrir vináttu Íslands og Eistlands og þeim gildum sem tengja þjóðirnar tvær: frelsi, lýðræði, seiglu, friði og samvinnu.“
Í móttökunni var boðið upp á íslenskar kræsingar, sem feðgarnir Hafliði Halldórsson og Halldór Hafliðason höfðu matreitt, auk þess sem Sigríður Thorlacius og Ómar Guðjónsson skemmtu með tónlistarflutningi.
Hin formlega kveðjustund forsetahjónanna var síðan á Íslandstorginu um hádegisbil í dag að viðstöddum opinberum sendinefndum beggja landa, utanríkisráðherra Eistlands og aðstoðarborgarstjóra Tallinn. Staðarvalið tengdist gagngerum endurbótum á torginu sem hópur ungra hönnuða frá báðum löndum hafa tekið þátt í að móta. Athöfnin hófst á því að Tiit Terik aðstoðarborgarstjóri lýsti sögu Íslandstorgs sem var upphaflega vígt árið 1998 til minningar um þann dýrmæta stuðning sem Íslendingar sýndu Eistlendingum fyrir 35 árum síðan.
Næst tók Margus Tsahkna utanríkisráðherra til máls. Hann sagði táknrænt að ráðuneyti hans stæði við þetta torg og að heimilisfang þess væri Íslandstorg 1. Hann þakkaði fyrirrennara sínum, Hendrik Ilves sem þarna var viðstaddur ásamt eiginkonu sinni, fyrir að hafa haft frumkvæði að þessari nafngift torgsins. Hann bætti við að innrásarstríð Rússa í Úkraínu væri áminning þess að fámennar þjóðir þyrftu áfram að hafa hugrekki til að standa vörð um sjálfstæði sitt og alþjóðalög.
Næst tóku til máls tveir fulltrúar þeirra ungu hönnuða sem borið hafa ábyrgð á endurnýjun Íslandstorgs en þau eru Markus Puidak, Marie Suimets, Artur Raik, Riina Parve, Katariina Kangro, Mdis Keerd og Málfríður Lárusdóttir. Í máli þeirra kom fram að markmiðið hefði verið að breyta torginu í grænt svæði með íslenskum einkennum. Þau hefðu meðal annars tekið mið af íslenskum torfbæjum og þeirri hefð Íslendinga að hlaða vörður á fjallvegum til að marka leiðir.
Forseti Íslands tók síðust til máls. Hún hrósaði eistnesk-íslenska hönnunarteyminu fyrir endursköpun Íslandstorgs sem hún sagðist vonast til að yrði umgjörð blómlegs mannlífs og vináttu. Hún þakkaði einnig eistnesku forsetahjónunum og eistnesku þjóðinni fyrir hlýjar móttökur og einstaka gestrisni og kvaðst kveðja Eistland með gleðitár á hvarmi.
Forsetahjón og fylgdarlið flugu frá Tallinn til Oslóar síðdegis og þaðan áfram til Íslands.
Fleiri fréttir

20. ágúst 2026
Hátíðisdagur í Tallinn
Annar dagur ríkisheimsóknar til Eistlands.
20. ágúst 2026
Hátíðisdagur í Tallinn

19. ágúst 2026
„Við megum ekki glata tengslunum við grunntón mennskunnar“
Forsetahjón sitja hátíðarkvöldverð í boði gestgjafa sinna.
19. ágúst 2026
„Við megum ekki glata tengslunum við grunntón mennskunnar“

19. ágúst 2026
Hlýjar móttökur í Tallinn
Fyrsti dagur ríkisheimsóknar til Eistlands.
19. ágúst 2026
Hlýjar móttökur í Tallinn