Landsliðskokkar á Bessastöðum
29. október 2024
Forseti býður til hádegisverðarmóttöku,


Forseti býður til hádegisverðarmóttöku þar sem fulltrúar Íslenska kokkalandsliðsins önnuðust matreiðsluna. Móttakan var í tilefni af Norðurlandaráðsþingi 2024 og sóttu hana um 120 gestir, þar á meðal forsætisráðherrar og þingforsetar Norðurlandanna. Eitt af markmiðum Íslenska kokkalandsliðsins er að vera leiðandi kraftur í að styrkja fagmannlega matreiðslu, auka áhuga ungmenna á matreiðslu og vera fyrirmynd í íslenskri matarhefð. Gestum Bessastaða var boðið upp á smárétti úr íslensku úrvalshráefni í takt við árstíðina og var matseðillinn svohljóðandi:
- Reykt Klaustursbleikja á smápönnukökum með sýrðum rjóma
- Fersk hörpuskel úr Ísafjarðardjúpi, piparrótarrjómi og dill
- Steiktur Vestmannaeyjaþorskur, kartöflumús og skelfisksósa
- Lambatartar frá Glitstöðum í Borgarfirði með estragon majonesi á flatbrauði og grafinni eggjarauðu
- Hornfirskt hreindýralifrarfrauð á stökku súrdeigsbrauði, krækiberjahlaup og sultuð krækiber
- Hægelduð gæsalæri og steiktir shitake-sveppir á hrökkbrauði
- Regnboga gulrætur frá Flúðum með sveppa- og beltisþaragljáa, skessujurtarkremi og stökku byggi frá Vallanesi
- Hægþurrkaðir tómatar frá Friðheimum, fennel og estragonolía
- Möndlukaka með mysukaramellu og jarðarberjum frá Reykholti
- Súkkulaðimús með hafra- og hnetumulningi
Fulltrúar landsliðsins sáu einnig um matreiðsluna í móttöku forsetahjóna á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn til heiðurs dönsku konungshjónunum í lok ríkisheimsóknar til Danmerkur þann 9. október. Er þetta því í annað sinn sem núverandi forseti efnir til samstarfs við Íslenska kokkalandsliðið með þessum hætti.
Pistill forseta: Íslenskt úrvalshráefni.
Fleiri fréttir

21. apríl 2026
Gervigreind til góðs
Forseti efnir til samtals um samfélagsleg áhrif gervigreindar.
21. apríl 2026
Gervigreind til góðs

20. apríl 2026
„Öflug hreyfing er óstöðvandi“
Forseti hittir nemendur Alþjóðlega jafnréttisskólans.
20. apríl 2026
„Öflug hreyfing er óstöðvandi“

16. apríl 2026
Velsæld á tímum gervigreindar
Forseti og Jesper Brodin ræða leiðtogahæfni og gervigreind á Velsældarþingi.
16. apríl 2026
Velsæld á tímum gervigreindar