„Lifandi ímynd æskufjörs og gleði“
13. júní 2026
Ljósmyndir: Sonja Margrét Ólafsdóttir og EFÍ.
Forsetahjón taka þátt í 1150 ára afmælishátíð Hrunamannahrepps.

Forseti tekur á móti blómum frá Önnu Björnsdóttur við Gömlu laugina á Flúðum.





„Einhverjir kunna að líta svo á að „Gullhreppurinn“ sé kominn af léttasta skeiði en í mínum huga er hann lifandi ímynd æskufjörs og gleði,“ sagði forseti meðal annars í hátíðarávarpi sínu á Flúðum. Hægt er að lesa ávarpið í heild hér á vefnum.
Sjá nánar.
Forsetahjón tóku þátt í 1150 ára afmælishátíð Hrunamannahrepps sem fram fór á Flúðum. Þau heimsóttu einnig Gömlu laugina á staðnum, sveppabúið Flúðasveppi og virkniúrræðið VISS. Í fylgd með þeim voru meðal annarra Aldís Hafsteinsdóttir sveitastjóri Hrunamannahrepps Jón Bjarnason oddviti og Ester Guðmundsdóttir, formaður afmælisnefndarinnar.
Hrunamannahreppur, sem er einnig oft nefndur Gullhreppurinn, afmarkast af svæðinu milli Hvítár og Stóru Laxár. Samkvæmt Landnámu numu bræðurnir Már og Bröndólfur Naddoddssynir þar land seint á níundu öld. Um helgina var af því tilefni efnt til afmælishátíðar á Flúðum og stóð dagskráin frá föstudegi til sunnudags. Hápunktur hennar var samkoma í Félagsheimili Hrunamanna sem hófst kl. 13.30 á laugardeginum.
Forsetahjón komu til Flúða tveimur klukkustundum fyrr og byrjuðu á því að heimsækja Gömlu laugina, sem var byggð árið 1891 og telst elsta sundlaug landsins. Hún var endurbyggð árið 2006 og dregur nú árlega til sín þúsundir gesta. Eigendur laugarinnar, þau Agnieszka Jadwiga Szwaja og Björn Kjartansson, gengu með forsetahjónum og fylgdarliði umhverfis laugina og bentu meðal annars á hverinn Litla Geysi sem reyndist mun líflegri en aldurhniginn nafni hans í Haukadal.
Næst lá leiðin í Flúðasveppi sem er stærsti vinnustaður Hrunamannahrepps. Ragnheiður Georgsdóttir framkvæmdastjóri og Ævar Eyfjörð Sigurðsson bústjóri tóku á móti hópnum og sögðu frá starfseminni, þar á meðal veitingastaðnum Farmers Bistro sem nýlega var opnaður í tengslum við svepparæktina. Þarna snæddu forsetahjón hádegisverð en heimsóttu síðan virkniúrræðið VISS. Þar starfa að jafnaði sex starfsmenn sem njóta aðstoðar þriggja leiðbeinenda undir forystu Else Nielsen. Forsetahjónum voru færðar góðar gjafir sem starfsmenn höfðu gert í tilefni dagsins, þar á meðal fögur sundtaska með íslenska fánanum.
Þegar forsetahjón komu að Félagsheimilinu tók stór hópur heimafólks á móti þeim. Var forsetahjónum færð karfa með litríku grænmeti sem ræktað er í Hrunamannahreppi. Hátíðarsamkoman innan dyra hófst á því að Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Jón Bjarnason, oddviti Hrunamannahrepps, fluttu hvort sitt ávarp en í kjölfarið stigu Bjarni Harðarson og séra Óskar H. Óskarsson á stokk. Einnig söng karlakór Hreppamanna nokkur vel valin lög milli atriða. Í ávarpi sínu sagði forseti meðal annars:
„Hér í Hrunamannahreppi hefur byggst upp öflugt samfélag þar sem hlúð er af alúð að atvinnusköpun, menningu, íþróttum og félagslífi íbúanna. Nýleg viðurkenning frá UNICEF er skýr vitnisburður um að hérna er lögð sérstök áhersla á að unga kynslóðin fái að blómstra. Þegar samfélag á sér svo langa sögu er freistandi að horfa fyrst og fremst til fortíðar. En tímamót, eins og við fögnum hér og nú, eiga líka að minna okkur á að tilvist Hrunamannahrepps byggist ekki á ártölum eða annálum. Hún býr í fólkinu sem velur að búa hérna, ala hér upp börnin sín, rækta jörðina, starfrækja fyrirtæki og stofnanir, sinna nágrönnum sínum og leggja sitt af mörkum til heildarinnar.“
Að endingu ítrekaði forseti hamingjusókir sínar til Hrunamanna og sagðist sannfærð um að þeir myndu skemmta sér við dans og söng fram á nótt.
Fleiri fréttir

2. júní 2026
Sóknarfæri í nýtingu jarðhita
Forseti fundar með utanríkisráðherra Slóvakíu.
2. júní 2026
Sóknarfæri í nýtingu jarðhita

1. júní 2026
Gestkvæmt á Bessastöðum
Stiklur úr dagbók forseta.
1. júní 2026
Gestkvæmt á Bessastöðum

27. maí 2026
„Líðan barna er mælikvarði á heilbrigði samfélagsins“
Forseti í samtali við framkvæmdastjóra UNICEF.
27. maí 2026
„Líðan barna er mælikvarði á heilbrigði samfélagsins“