Lokaviðburður Samtals í Hörpu
11. október 2026
Ljósmyndir: EFÍ og Pétur Fjeldsted.
Forseti, ungt fólk og kórar kynna afrakstur gærdagsins.

Frá æfingu stúlknakóra og Karlakórs Reykjavíkur fyrir viðburðínn í Hörpu.
Hægt er að fylgjast með beinu streymi frá Hörpu á vefnum talasaman.is.
Sjá nánar.
Forseti Íslands, fulltrúar ungs fólks og íslenskir kórar taka þátt í kynningu á afrakstri verkefnisins Samtals í Hörpu í dag. Beint streymi verður frá viðburðinum á vef verkefnisins, talasaman.is.
Hundruðir Íslendinga settust niður síðdegis í gær víða um land til að ræða um spurninguna: Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Afrakstrinum verður miðlað á viðburði í Hörpu kl. 14:00-15:00. Viðburðurinn er öllum opinn og honum er einnig streymt.
Forseti flytur opnunarávarp og ungt fólk úr hópi skipuleggjenda miðlar niðurstöðunum. Sex kórar taka þátt í dagskránni: Skólakór Kársness, Stúlknakór Reykjavíkur, Aurorakórinn, Barnakórinn við Tjörnina, Fjallabræður og Karlakór Reykjavíkur.
Hugmyndin að verkefninu Samtal varð til við borðstofuborðið á Bessastöðum á liðnu vori og er forseti Íslands verndari þess. Meðal þeirra sem lagt hafa hönd á plóginn við undirbúning eru Samtal - félag til almannaheilla, Bandalag íslenskra skáta, UMFÍ, Félag framhaldsskólanema, Skólameistarafélag Íslands, Landssamband íslenskra stúdenta, Riddarar kærleikans, Heimili og skóli, ráðuneyti, stofnanir, og einstaklingar.
Fleiri fréttir

10. október 2026
Afrakstur Samtals kynntur þjóðinni
Forseti ávarpar þátttakendur um land allt.
10. október 2026
Afrakstur Samtals kynntur þjóðinni

9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar
Forseti tekur þátt í viðburði með Tristan Harris og Raskin-hjónum.
9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag