Ríkisheimsókn forsetahjóna til Eistlands
14. ágúst 2026
Ljósmynd: EFÍ.
Fjölbreytt dagskrá í Tallinn 19.-21. ágúst.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, fara í næstu viku í þriggja daga ríkisheimsókn til Eistlands. Forseti Eistlands, Alar Karis, og eiginkona hans, Sirje Karis, bjóða til þessarar heimsóknar og er markmiðið að styrkja hin góðu tengsl landanna tveggja, meðal annars á sviði tækni og menntamála. Í fylgdarliði forseta er Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ásamt opinberri sendinefnd. Samhliða ríkisheimsókninni fer viðskiptasendinefnd, leidd af Íslandsstofu, til Eistlands og tekur þátt í dagskrá með þarlendum fyrirtækjum.
Eistnesku forsetahjónin bjóða íslensku forsetahjónin formlega velkomin til Eistlands á ráðhússtorginu í Tallinn að morgni miðvikudagsins 19. ágúst. Þar verður lagður blómsveigur að minnismerki um sjálfstæðisbaráttu eistnesku þjóðarinnar. Í kjölfarið eiga forsetarnir fund í forsetahöllinni ásamt opinberum sendinefndum landanna. Um hádegisbil taka forsetarnir þátt í samtali um gervigreind til góðs á viðburði á vegum viðskiptasendinefnda landanna. Forseti og fylgdarlið snæða að því loknu miðdegisverð í boði forsætisráðherra Eistlands, Kristen Michal. Síðdegis heimsækir forseti meðal annars þinghúsið í Tallinn og fundar með forseta eistneska þingsins, Lauri Hussar. Dagskrá dagsins lýkur með hátíðarkvöldverði í boði eistnesku forsetahjónanna í Arvo Pärt menningarmiðstöðinni í Laulasmaa.
Annar dagur heimsóknarinnar, fimmtudagurinn 20. ágúst, er Dagur endurreisnar sjálfstæðis Eistlands. Mun forseti Íslands taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá þeim sögulegu tímamótum. Meðal dagskrárliða er fánahylling í Kuberneri-garðinum og heimsókn í sjónvarpsturninn í Tallinn sem varð tákn um baráttu Eistlendinga gegn sovéskum hersveitum. Forsetahjón sækja einnig hátíðarfund eistneska þingsins og hóps eftirlifandi stjórnmálamanna sem samþykktu sjálfstæðisyfirlýsinguna árið 1991. Forseti Íslands flytur þar ávarp ásamt formanni hópsins, forseta Eistlands og þingforsetum Eystrasaltslandanna þriggja. Hún mun einnig ávarpa gesti í árvissri móttöku sem Eistlandsforseti býður til í Rósagarðinum við forsetahöllina um kvöldið.
Dagskrá heimsóknarinnar lýkur föstudaginn 21. ágúst. Um morguninn heimsækja forsetahjón og fylgdarlið menntaskóla sem nýtir nýstárlegar kennsluaðferðir tengdar gervigreind. Einnig verða þau viðstödd hátíðlega athöfn á Íslandstorginu í Tallinn laust eftir hádegi.
Fleiri fréttir

14. september 2026
„Getum við lært að vera ósammála fallega?“
Forseti fundar með skólastjórnendum og nemendum framhaldsskóla og háskóla.
14. september 2026
„Getum við lært að vera ósammála fallega?“

11. september 2026
„Ljóð eru eins og andleg eróbikk“
Sýning helguð ljóðabókaskáp Vigdísar í Bókasafni Garðabæjar.
11. september 2026
„Ljóð eru eins og andleg eróbikk“

10. september 2026
Konungur sem helgaði líf sitt þjónustu við þjóð sína
Forsetahjón viðstödd útför Haraldar V Noregskonungs.
10. september 2026
Konungur sem helgaði líf sitt þjónustu við þjóð sína