Ríkisráðsfundur á Bessastöðum
9. september 2026
Ljósmyndir: EFÍ.
Stiklur úr dagbók forseta.

Frá ríkisráðsfundinum á Bessastöðum.





Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, var í viðtali í Morgunútvarpi Rásar 2 í liðinni viku og ræddi meðal annars um skoðanaskipti og lýðræðið.
Sjá nánar
Forseti stýrði ríkisráðsfundi á Bessastöðum 7. september, venju samkvæmt, degi áður en Alþingi var sett. Á ríkisráðsfundum eru staðfest lög og ýmsar stjórnarathafnir en í lok fundarins sagði forseti ráðherrum frá Samtal þjóðarinnar, sem áformað er að efna til um land allt laugardaginn 10. október næstkomandi.
Þennan sama dag tók forseti einnig á móti Olayinka Babalola, heimsforseta alþjóðlegu Rótarý-hreyfingarinnar, Soffíu Gísladóttur, sem situr í stjórn hennar og Elísabetu S. Ólafsdóttur, umdæmisstjóra Rótary hérlendis. Í för með þeim voru einnig íslensk ungmenni sem notið hafa stuðnings hreyfingarinnar og tekið þátt í starfi hennar en eitt helsta áherslumál Babalola í embætti er að hvetja ungt fólk til virkrar samfélagslegrar þátttöku og stefnumótunar.
Meðal annarra sem hafa sótt Bessastaði heim og fundað með forseta undanfarna daga eru Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans, ásamt fulltrúum frá Rauða krossi Íslands. Einnig hitti forseti sendinefnd breskra þingmanna sem voru í heimsókn hérlendis á vegum Alþingis. Þeir eiga sæti í vinahópi Íslands á breska þinginu sem hefur það hlutverk að efla tengsl þjóðþinganna.
Þá bauð forseti hópi norrænna og eistneskra blaðamanna til samtals í borðstofunni á Bessastöðum. Hópurinn var hér á landi vegna árlegs fundar Sambands norrænna blaðamanna sem fram fór í Reykjavík 2.-3. september. Meðal þess sem bar á góma voru margvíslegar áskoranir sem gervigreind, samfélagsmiðlar og breytingar á auglýsingamarkaði hafa í för með sér fyrir hefðbundna blaðamennsku.
Loks má nefna að forseti var í liðinni viku í viðtölum á Rás 2 og CNN í framhaldi af þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst.
Fleiri fréttir

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar