Tungumálavinir á Norðurlöndum
3. apríl 2025
Forseti flytur ávarp og opnar norræna barnasýningu.








Forseti flytur ávarp og opnar norræna barnasýningu í Listasafni Íslands. Sýningin er afrakstur Nordplus verkefnisins SPIN - en það er skammstöfun fyrir Sprogvenner i Norden - kunsten at forstå hinanden eða Tungumálavinir á Norðurlöndum – listin að skilja hvert annað.
Verkefnið byggir á þeirri grunnhugsun að fjöltyngi sé dýrmæt auðlind. Markmið SPIN er að efla næmi fyrir menningarlegum fjölbreytileika og stuðla að inngildingu. Börnunum er gefið færi á að dýpka skilning á eigin tungumála- og menningarlegum fjölbreytileika, sem og jafnaldra sinna á Norðurlöndum.
Nemendur í 6. bekk Háteigsskóla og Melaskóla voru í vikunni gestgjafar jafnaldra sinna frá Danmörku og Færeyjum og tóku þau þátt í opnun sýningarinnar ásamt forseta.
Samstarfsaðilar SPIN verkefnisins eru Listasafn Íslands, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Melaskóli, Háteigsskóli ásamt Eysturskúlin í Þórshöfn í Færeyjum, Skovvangskolen, Kulturkompasset og menningarstofnunin Dokk1 í Árósum í Danmörku.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar