Opinber heimsókn til Færeyja
19. júní 2026
Ljósmynd: Færeyska stjórnarráðið.
Forsetahjón halda til Þórshafnar mánudaginn 22. júní.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar fara í opinbera heimsókn til Færeyja dagana 22.-24. júní 2026. Gestgjafar þeirra eru lögmaðurinn í Færeyjum, Beinir Johannesen, og eiginkona hans, Helena Johannesen. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja náin tengsl Íslands og Færeyja og vinna að frekara samstarfi landanna, meðal annars á sviði sjávarútvegs, orkumála, nýsköpunar og menningarmála.
Dagskráin hefst laust eftir hádegi mánudaginn 22. júní með fundi forseta Íslands og lögmanns Færeyja í Tinganesi í Þórshöfn. Á meðan heimsækja Björn Skúlason og Helena Johannesen Heima veitingahúsaklasann. Í kjölfarið bjóða lögmannshjónin forsetahjónum og fylgdarliði til móttöku í Tinganesi ásamt ráðherrum færeysku ríkisstjórnarinnar. Þessu næst heimsækja forsetahjón Løgtingið þar sem þingforsetinn, Johan Dahl, tekur á móti þeim. Dagskrá mánudagsins lýkur með hátíðarkvöldverði í boði lögmannshjóna á Hotel Føroyar.
Þriðjudaginn 23. júní fara forsetahjón og lögmannshjón ásamt fylgdarliði í ferð um Eysturoy og Borðoy. Dagskráin hefst á heimsókn í vindorkuver SEV (rafmagnsveitu Færeyja) í Húshaga. Næst verða Eysturoyargöngin skoðuð en þau eru ein lengstu bílagöng heims undir sjávarmáli. Aðrir viðkomustaðir eru MEST skipasmíðastöðin í Skála, ný sundlaug í Runavík og laxeldisfyrirtækið Bakkafrost. Dagskránni í Runavík lýkur með hádegisverði í boði bæjarstjórnar.
Eftir hádegi halda forsetahjón og lögmannshjón til Klaksvíkur þar sem haldið verður viðskiptaþing íslenskra og færeyskra fyrirtækja. Þau heimsækja einnig vinnustofu myndlistarmannsins Edwards Fuglø og róðrarklúbb Klaksvíkur. Eftir það liggur leiðin í hússtjórnarskólann Rótina sem leggur áherslu á fræðslu um færeyska matargerð, handverk og sjálfbærni. Dagskrá dagsins lýkur með kvöldverðarboði í boði bæjarstjórnar Klaksvíkur.
Lokadagur heimsóknarinnar, 25. júní, hefst með morgunverði í boði Þórshafnarbæjar. Einnig heimsækja forsetahjón og lögmannshjón nýsköpunar- og frumkvöðlamiðstöð Þórshafnar og Færeyjaháskóla. Heimsókninni lýkur um miðjan dag á gagnkvæmnismóttöku forsetahjóna í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“