Skjólbelti

„Við leggjum jafnvel meiri rækt við skjáinn en velferð okkar sjálfra og nánustu ættingja.“

Forseti hefur við mörg tækifæri lagt áherslu á mikilvægi andlegrar heilsu og að reisa þurfi skjólbelti í kringum börn og ungmenni, ekki síst gagnvart stafrænu áreiti.
Hún sagði meðal annars í ávarpi á Hólahátíð sumarið 2025:
„Athyglissamfélagið, eins og farið er að kalla þá þjóðfélagsgerð sem við búum nú við, hefur að mínu mati rænt okkur innri og ytri ró, aukið bilið milli kynslóða, rofið tengsl okkar hvert við annað og snertinguna við náttúruna í kringum okkur.“
Forseti efndi til samtals á Bessastöðum fáum vikum síðar með ungu fólki og fagaðilum til að ræða áhrif snjalltækja og samfélagsmiðla á líf og líðan barna og ungmenna. Hópurinn sem hittist á Bessastöðum hefur haldið samtalinu áfram með ýmsum hætti og er málsvari símafriðs og fræðslu í íslensku samfélagi.




