Ásgeir Ásgeirsson

Ásgeir Ásgeirsson var kjörinn forseti Íslands 29. júní 1952. Hann lét af embætti árið 1968.

Annar forseti lýðveldisins, Ásgeir Ásgeirsson, var fæddur í Kóranesi á Mýrum 13. maí 1894 og lést 15. september 1972. Eiginkona hans var Dóra Þórhallsdóttir (1893–1964). Börn þeirra voru þrjú: Þórhallur, Vala og Björg.
Ásgeir lauk stúdentsprófi árið 1912 og guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands þremur árum síðar. Hann stundaði á næstu árum framhaldsnám við háskólana í Kaupmannahöfn og Uppsölum.
Ásgeir starfaði um hríð sem biskupsritari, bankaritari við Landsbankann, kennari við Kennaraskólann og bankastjóri Útvegsbankans. Hann var fræðslumálastjóri í rúman áratug. Hann sat á þingi á árunum 1923 til 1952, lengst af fyrir Framsóknarflokkinn og Alþýðuflokkinn.
Ásgeir var forseti Íslands í fjögur kjörtímabil. Hann var endurkjörinn án atkvæðagreiðslu 1956, 1960 og 1964.
Nánari umfjöllun um æviferil Ásgeirs Ásgeirsonar er á vef Alþingis.
Ávörp og ræður frá forsetatíð Ásgeirs
1968
Áramótaávarp | 1. janúar 1968 |
1967
Áramótaávarp | 1. janúar 1967 |
1966
Áramótaávarp | 1. janúar 1966 |
1965
Áramótaávarp | 1. janúar 1965 |
1964
Innsetningarræða | 1. ágúst 1964 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 1964 |
1963
Áramótaávarp | 1. janúar 1963 |
1962
Áramótaávarp | 1. janúar 1962 |
1961
Áramótaávarp | 1. janúar 1961 |
1960
Innsetningarræða | 1. ágúst 1960 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 1960 |
1959
Áramótaávarp | 1. janúar 1959 |
1958
Áramótaávarp | 1. janúar 1958 |
1957
Áramótaávarp | 1. janúar 1957 |
1956
Innsetningarræða | 1. ágúst 1956 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 1956 |
1955
Áramótaávarp | 1. janúar 1955 |
1954
Áramótaávarp | 1. janúar 1954 |
1953
Áramótaávarp | 1. janúar 1953 |
1952
Innsetningarræða | 1. ágúst 1952 |
Aðrir fyrri forsetar Íslands





