Vigdís Finnbogadóttir

Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti 29. júní 1980. Hún var fyrsta konan í heiminum sem var kjörin þjóðhöfðingi í lýðræðislegum kosningum. Vigdís lét af embætti árið 1996.

Fjórði forseti lýðveldisins, Vigdís Finnbogadóttir, er fædd í Reykjavík 15. apríl 1930. Hún varð fyrst einhleypra kvenna á Íslandi til að ættleiða barn, dótturina Ástríði Magnúsdóttur.
Vigdís lauk stúdentsprófi árið 1949 en stundaði síðar nám í frönsku og frönskum bókmenntum í Grenoble og París og leiklistarsögu við Kaupmannahafnarháskóla. Hún tók BA-próf í frönsku frá Háskóla Íslands og próf í uppeldis- og kennslufræðum árið 1968.
Vigdís starfaði sem blaðafulltrúi Þjóðleikhússins, menntaskólakennari og leiðsögumaður, auk þess sem hún kenndi um skeið við Háskóla Íslands. Hún var ráðin leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur 1972, fyrst kvenna.
Vigdís var fyrsta konan í heiminum sem kjörin var í embætti forseta í lýðræðislegum kosningum og sat í fjögur kjörtímabil. Hún var endurkjörin án atkvæðagreiðslu 1984 og 1992 og í kosningum 1988.
Ítarleg umfjöllun um forsetatíð Vigdísar Finnbogadóttur er á vefnum vigdis.is.
Ræður og ávörp frá forsetatíð Vigdísar
1996
Áramótaávarp | 1. janúar 1996 |
1995
Áramótaávarp | 1. janúar 1995 |
1994
Áramótaávarp | 1. janúar 1994 |
1993
Áramótaávarp | 1. janúar 1993 |
1992
Innsetningarræða | 1. ágúst 1992 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 1992 |
1991
Áramótaávarp | 1. janúar 1991 |
1990
Áramótaávarp | 1. janúar 1990 |
1989
Áramótaávarp | 1. janúar 1989 |
1988
Innsetningarræða | 1. ágúst 1988 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 1988 |
1987
Áramótaávarp | 1. janúar 1987 |
1986
Áramótaávarp | 1. janúar 1986 |
1985
Áramótaávarp | 1. janúar 1985 |
1984
Innsetningarræða | 1. ágúst 1984 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 1984 |
1983
Áramótaávarp | 1. janúar 1983 |
1982
Áramótaávarp | 1. janúar 1982 |
1981
Áramótaávarp | 1. janúar 1981 |
1980
Innsetningarræða | 1. ágúst 1980 |
Aðrir fyrri forsetar Íslands





