Ólafur Ragnar Grímsson

Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn forseti 29. júní 1996. Hann lét af embætti 2016.

Fimmti forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson, er fæddur á Ísafirði 14. maí 1943. Fyrri kona Ólafs Ragnars var Guðrún Katrín Þorbergsdóttir (1934–1998). Síðari kona hans er Dorrit Moussaieff (f. 1950). Börn Ólafs og Guðrúnar Katrínar eru Guðrún Tinna og Svanhildur Dalla.
Ólafur varð stúdent árið 1962, hann lauk BA-prófi í hagfræði og stjórnmálafræði frá University of Manchester árið 1965 og doktorsprófi í stjórnmálafræði frá sama skóla fimm árum síðar.
Ólafur Ragnar var skipaður lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands 1970 og prófessor í sömu grein þremur árum síðar. Hann sat á Alþingi sem varaþingmaður og þingmaður með hléum frá 1974 til 1995, lengst af fyrir Alþýðubandalagið, og var fjármálaráðherra milli 1988 og 1991.
Ólafur Ragnar Grímsson sat í fimm kjörtímabil sem er lengur en nokkur annar. Hann var endurkjörinn án atkvæðagreiðslu 2000 og 2008 og í kosningum 2004 og 2012.
Opinber vefur forsetaembættisins í tíð Ólafs Ragnars Grímssonar er aðgengilegur hér.
Ávörp og ræður frá forsetatíð Ólafs
2016
Áramótaávarp | 1. janúar 2016 |
2015
Áramótaávarp | 1. janúar 2015 |
2014
Áramótaávarp | 1. janúar 2014 |
2013
Áramótaávarp | 1. janúar 2013 |
2012
Innsetningarræða | 1. ágúst 2012 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 2012 |
2011
Áramótaávarp | 1. janúar 2011 |
2010
Áramótaávarp | 1. janúar 2010 |
2009
Áramótaávarp | 1. janúar 2009 |
2008
Innsetningarræða | 1. ágúst 2008 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 2008 |
2007
Áramótaávarp | 1. janúar 2007 |
2006
Áramótaávarp | 1. janúar 2006 |
2005
Áramótaávarp | 1. janúar 2005 |
2004
Innsetningarræða | 1. ágúst 2004 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 2004 |
2003
Áramótaávarp | 1. janúar 2003 |
2002
Áramótaávarp | 1. janúar 2002 |
2001
Áramótaávarp | 1. janúar 2001 |
2000
Innsetningarræða | 1. ágúst 2000 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 2000 |
1999
Áramótaávarp | 1. janúar 1999 |
1998
Áramótaávarp | 1. janúar 1998 |
1997
Áramótaávarp | 1. janúar 1997 |
1996
Innsetningarræða | 1. ágúst 1996 |
Aðrir fyrri forsetar Íslands





