Guðni Th. Jóhannesson

Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur var kjörinn forseti 25. júní 2016. Hann lét af embætti 2024.

Sjötti forseti lýðveldisins, Guðni Th. Jóhannesson, fæddist í Reykjavík 26. júní árið 1968. Guðni er kvæntur Elizu Reid (f. 1976). Börn þeirra eru Duncan Tindur, Donald Gunnar, Sæþór Peter og Edda Margrét. Guðni á dótturina Rut með fyrri eiginkonu sinni, Elínu Haraldsdóttur.
Guðni lauk stúdentsprófi árið 1987 og BA-námi í sögu og stjórnmálafræði frá Warwick-háskóla á Englandi fjórum árum síðar. Hann lauk MA-námi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1997, MSt-gráðu í sögu frá Oxford-háskóla á Englandi tveimur árum síðar og doktorsprófi í sagnfræði frá Queen Mary, University of London árið 2003.
Guðni starfaði sem fréttamaður á fréttastofu Ríkisútvarpsins og stundakennari við Háskóla Íslands, Háskólann á Bifröst og University of London áður en hann var ráðinn lektor við Háskólann í Reykjavík 2007. Frá 2013 var Guðni lektor, dósent og loks prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.
Guðni sat í tvö kjörtímabil. Hann var endurkjörinn í kosningum 2020.
Opinber vefur forsetaembættisins í tíð Guðna Th. Jóhannessonar er aðgengilegur hér.
Ávörp og ræður frá forsetatíð Guðna
2024
Áramótaávarp | 1. janúar 2024 |
2023
Áramótaávarp | 1. janúar 2023 |
2022
Áramótaávarp | 1. janúar 2022 |
2021
Áramótaávarp | 1. janúar 2021 |
2020
Innsetningarræða | 1. ágúst 2020 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 2020 |
2019
Áramótaávarp | 1. janúar 2019 |
2018
Áramótaávarp | 1. janúar 2018 |
2017
Áramótaávarp | 1. janúar 2017 |
2016
Innsetningarræða | 1. ágúst 2016 |
Aðrir fyrri forsetar Íslands





