Sveinn Björnsson

Sveinn Björnsson var kjörinn forseti Íslands af Alþingi á Þingvöllum við lýðveldisstofnun 1944. Hann lést í embætti árið 1952.

Fyrsti forseti lýðveldisins, Sveinn Björnsson, var fæddur í Kaupmannahöfn 27. febrúar 1881 og lést 25. janúar árið 1952. Eiginkona hans var Georgia Björnsson (1884–1957). Þau áttu saman sex börn: Björn, Önnu Catherine Aagot, Henrik, Svein, Ólaf og Elísabetu.
Sveinn lauk stúdentsprófi árið 1900 og lögfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1907. Hann rak eigin lögfræðiskrifstofu og sat í bæjarstjórn Reykjavíkur frá 1912 til 1920 en þá var hann skipaður sendiherra í Danmörku. Gegndi hann því embætti fram til ársins 1924 og svo aftur á árunum 1926 til 1941 þegar hann var kjörinn ríkisstjóri.
Sveinn var forseti í tæp átta ár. Hann var þjóðkjörinn án atkvæðagreiðslu 1945 og 1949.
Nánari umfjöllun og æviferil Sveins Björnssonar er á vef Alþingis.
Ávörp og ræður frá forsetatíð Sveins
1952
Áramótaávarp | 1. janúar 1952 |
1951
Áramótaávarp | 1. janúar 1951 |
1950
Áramótaávarp | 1. janúar 1950 |
1949
Innsetningarræða | 1. ágúst 1949 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 1949 |
1948
Áramótaávarp | 1. janúar 1948 |
1946
Áramótaávarp | 1. janúar 1946 |
1945
Innsetningarræða | 1. ágúst 1945 | ||
Áramótaávarp | 1. janúar 1945 |
Aðrir fyrri forsetar Íslands





