Gestkvæmt á Bessastöðum
1. júní 2026
Ljósmyndir: Laufey Björk Ólafsdóttir, Sigurjón Ragnar, Stefanía Linnet, Þorgeir Elíesersson og EFÍ.
Stiklur úr dagbók forseta.

Forseti ásamt hópnum sem fékk viðurkenningar frá Blóðgjafafélagi Íslands.







Það var gestkvæmt á Bessastöðum í liðinni viku. Forseti tók meðal annars á móti fulltrúum úr Blóðgjafafélagi Íslands. Afhenti hún viðurkenningar til blóðgjafa sem að hafa gefið blóð 150, 175, 200 og 250 sinnum. Samtals hafði þessi sex manna hópur gefið blóð í 1200 skipti. Þar sem hver blóðgjöf getur bjargað allt að þremur mannslífum er í raun um að ræða allt að 3600 lífgjafir.
Forseti hitti einnig hóp íslenskra barna sem eru á leið í sumarbúðir erlendis á vegum Íslandsdeildar CISV (Children's International Summer Villages). Um er að ræða alþjóðleg samtök sem leggja áherslu á frið í gegnum vináttu og samstarf barna með ólíkan bakgrunn. Meðal annarra gesta á Bessastöðum voru nemendur í hagfræði, jarðfræði og stjórnmálafræði frá Trinity-háskóla Texas, sem eru í námsferð hérlendis, og öldungadeildarþingkonurnar Catherine Cortez Masto og Lisa Murkowski.
Forseti tók einnig í vikunni þátt í alþjóðlegum viðburði á vegum UNICEF og afhendingu þriggja viðurkenninga: heiðursverðlauna Grímunnar og Eddunnar og verðlauna í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Heiðursverðlaun Grímunnar hlaut Þórunn Elísabet Sveinsdóttir leikmynda- og búningarhönnuður og heiðursverðlaun Eddunnar hlaut Þorsteinn Jónsson leikstjóri.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna er hugmyndasamkeppni fyrir nemendur í 5.–7. bekk. Lokahóf hennar fór fram í nýju húsnæði Menntavísindasviðs HÍ á Sögu. Veitt voru verðlaun í sjö flokkum og einnig var veitt hvatningarviðurkenningin VILJI til nýsköpunarkennara grunnskólanna 2026. Hana hlaut Drífa Hjördís Thorstensen, grunnskólakennari við Háaleitisskóla á Ásbrú.
Í byrjun vikunnar sóttu forsetahjón styrktarleik Breiðabliks og FH. Rann ágóðinn í Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Í lok vikunnar tók forseti þátt opnun tveggja sýninga í Listasafni Íslands sem eru hluti af Listahátíð 2026. Þetta voru sýning Bjarkar echolalia og sýning James Merry Ummyndlingar.
Hægt er að fræðast um alla verðlaunahafana í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna á vef keppninnar.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

27. maí 2026
„Líðan barna er mælikvarði á heilbrigði samfélagsins“
Forseti í samtali við framkvæmdastjóra UNICEF.
27. maí 2026
„Líðan barna er mælikvarði á heilbrigði samfélagsins“

26. maí 2026
Rætt um jafnréttismál og græna orku
Forseti hittir bandarískar öldungadeildarþingkonur.
26. maí 2026
Rætt um jafnréttismál og græna orku

26. maí 2026
„Leikhúsið er griðastaður“
Forseti afhendir heiðursverðlaun Grímunnar.
26. maí 2026
„Leikhúsið er griðastaður“