Fréttir | 03. júlí 2021

Reykjavík Fringe Festival

Forseti sækir fyrsta viðburð Reykjavík Fringe Festival, listsýningu í Gallerí Fold. RVK Fringe er alþjóðleg listahátíð grasrótarhópa og annars listafólks. Síðar í dag hlýddu forsetahjón á annan viðburð hátíðarinnar, tónleika Hafdísar Bjarnadóttur og Passepartout Duo í Árbæjarsafni. Þau hafa heimsótt sveitabæi, spilað á hljóðfæri fyrir kindur og hljóðritað viðbrögðin til að leita svara við því hvers konar tónlist sauðfé líki best. Tónleikarnir hófust úti í návist fjárhjarðar safnsins en héldu svo áfram innandyra. Dagskrá listahátíðarinnar má sjá hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar