Fréttir | 01. okt. 2021

Fundur með forsætisráðherra

Forseti á fund með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og formanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, á skrifstofu forseta Íslands í Reykjavík. Rætt var um viðræður hennar, Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, og Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formanns Framsóknarflokksins, undanfarna daga og þau áform að þessir þrír flokkar haldi ríkisstjórnarsamstarfi áfram. Forseti mun áfram fylgjast með gangi mála eftir þörfum.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar