• Magnús Bernharðsson og forseti í pallborðsumræðu í Williams College.
  • Fundur með starfsmönnum og nokkrum nemenda Williams háskóla.
  • Spjallað við nemendur í gönguferð um háskólasvæðið.
  • Anna Peale bókavörður sýnir forseta fágætar kortabækur.
  • Magnús Bernharðsson og Tómas Aðalsteinsson fylgdu forseta um háskólasvæðið.
  • Starfsfólk skólablaðs háskólans átti fund með forseta.
  • Forseti skoðar handrit að stjórnarskrá Bandaríkjanna.
  • Móttaka til heiðurs forseta Íslands í bókasafni Williams College.
  • Innlit í eitt af elstu íþróttahúsum Bandaríkjanna.
  • Frá samræðu forseta og Magnúsar Bernharðssonar fyrir fullu húsi í '62 Center for Theater and Dance.
  • Hlýtt á þjóðsöng Íslendinga í Williamstown.
Fréttir | 09. nóv. 2022

Williams College

Forseti heimsækir Williams College, háskóla í Massachusetts í Bandaríkjunum, og situr þar í pallborði og ræðir við Magnús Bernharðsson, prófessor í sagnfræði, um Ísland nútímans, ímynd þess, alþjóðlega stöðu og tengd efni. Viðburðinum var streymt á vef Williams College og sjá má upptökuna hér.

Skólinn er talinn einn af bestu háskólum landsins og meðal greina sem þar hafa sterka stöðu eru sagnfræði, listfræði og hagfræði. Í heimsókn sinni skoðaði forseti meðal annars bókasafnið á staðnum sem státar af frumriti stjórnarskrár Bandaríkjanna og fleiri fágætum ritum. Þá hitti forseti að máli rektor skólans og allmarga úr hópi stjórnenda og nemenda, auk Íslendinga sem þarna búa eða starfa. Jafnframt sat forseti fyrir svörum hjá blaðamönnum skólablaðsins á staðnum.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar