Fréttir | 16. júní 2023

Opið hús 18. júní

Sunnudaginn 18. júní verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi. Forseti tekur á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 13:00 og 16:00. Bessastaðastofa var byggð á 18. öld og á sér merka sögu. Í húsinu má sjá sýnishorn gjafa, sem forseta hafa borist, og fornleifar í kjallara veita innsýn í búsetu á Bessastöðum allt frá landnámstíð.

Auk Bessastaðastofu munu gestir geta skoðað móttökusal og bókhlöðu forsetasetursins. Þá mun fyrsti forsetabíllinn, Packard bifreið Sveins Björnssonar, standa í hlaði en bifreiðin er árgerð 1942. Starfsmenn embættis forseta og aðstoðarmenn veita upplýsingar um staðinn og verða gestum til aðstoðar.

Myndasafn frá opnu húsi á Bessastöðum 18. júní 2022.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar