Fréttir | 07. des. 2023

Undirskriftir

Forseti tekur á móti fulltrúum stjórnar samtakanna Mín leið - mitt val sem afhenda undirskriftalista. Safnað var undirskriftum til stuðnings ákalli um að Ísland segi sig frá Alþjóðheilbrigðismálastofnuninni WHO, verði fyrirhugaðar breytingar á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni, stofnskrá WHO, ekki stöðvaðar. Á fundinum með forseta röktu gestirnir, þau Leifur Árnason, Kristín Þormar, Sigurlaug Þ. Ragnarsdóttir og Valgerður Snæland Jónsdóttir, þau sjónarmið sem búa að baki undirskriftasöfnuninni og lesa má um í aðfaraorðum undirskriftalistans. Alls skrifaði 2651 undir ákallið.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar