• Orðuhafar 1. janúar 2024 ásamt forsetahjónum.
Fréttir | 01. jan. 2024

Orðuveiting

Forseti sæmir 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á nýársdag. Þau eru:

1. Auður Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona og rithöfundur, riddarakross fyrir framlag til myndlistar og störf í þágu kvennabaráttu.
2. Elísabet Gunnarsdóttir knattspyrnuþjálfari, riddarakross fyrir framlag til kvennaknattspyrnu og annarra íþrótta.
3. Erna Sif Arnardóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík og svefnfræðingur, riddarakross fyrir framlag til nýsköpunar og svefnrannsókna.
4. Gylfi Þór Þorsteinsson, teymisstjóri hjá Rauða krossinum á Íslandi, riddarakross fyrir störf í þágu samfélags og mannúðar.
5. Helga Þorbergsdóttir hjúkrunarstjóri á heilsugæslustöðinni í Vík, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðisþjónustu og sveitarstjórnar- og félagsstarfa í heimabyggð.
6. Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarmaður, riddarakross fyrir heimildamynda- og þáttagerð og framlag til vitundarvakningar á sviði jafnréttismála.
7. Jenný Karlsdóttir, handverkskona og kennari, riddarakross fyrir framlag til varðveislu íslenskrar alþýðu- og handverksmenningar.
8. Jón Kristinsson arkitekt, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf í vistvænni húsagerðarlist á alþjóðavettvangi.
9. Karel Ingvar Karelsson, fyrrverandi skipstjóri, riddarakross fyrir framlag til sjómennsku ungs fólks og eflingar sjómannastéttarinnar.
10. Knútur Rafn Ármann, framkvæmdastjóri og eigandi Friðheima, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf á sviði matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingar.
11. Margrét Bóasdóttir, söngkona og söngstjóri, riddarakross fyrir framlag til tónlistarflutnings og kórmenningar.
12. Reynir Pétur Steinunnarson garðyrkjubóndi, riddarakross fyrir afrek og framgöngu í þágu fatlaðra.
13. Sigurður Harðarson rafeindavirkjameistari, riddarakross fyrir störf á sviði fjarskipta- og öryggismála í þágu björgunarsveita, lögreglu og brunavarna.
14. Vilmundur G. Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar og prófessor, riddarakross fyrir framlag til rannsókna og forvarna á sviði hjarta- og æðasjúkdóma.

Myndasafn frá orðuveitingu 1. janúar 2024.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar