Forseti flytur fyrirlestur um náttúruvíðerni Íslands í sögulegu ljósi við Háskólann í Leeds á ráðstefnu undir yfirskriftinni The Future of Wild Europe. Forseti ræddi hvernig nytjasjónarmið fyrri alda og áratuga hefðu nú vikið að hluta fyrir áhuga á að njóta náttúrufegurðar landsins í friðsæld með áherslu á ósnortna náttúru. Forseti fjallaði einnig um mismunandi sjónarmið varðandi hvernig ferðamenn geti notið hinnar ósnortnu náttúru, hvernig menn vilji skilgreina ósnortna náttúru og það að innviðir ferðaþjónustunnar á Íslandi geta nú varla talist fullnægjandi lengur vegna gríðarlegrar fjölgunar gesta síðustu árin. Fyrirlestrinum var vefvarpað og verður hann aðgengilegur um sinn á vef háskólans á slóðinni https://livestream.com/uol/eurwild. Myndir.
Fréttir
|
14. sep. 2016
Fyrirlestur forseta við Háskólann í Leeds
Aðrar fréttir
Fréttir
|
25. apr. 2024
Lýðheilsuverðlaunin 2024 afhent
Forseti afhendir Íslensku lýðheilsuverðlaunin í annað sinn
Lesa frétt
Fréttir
|
25. apr. 2024
Iceland Writers Retreat
Forsetahjón taka á móti þátttakendum ritlistarbúða.
Lesa frétt
Fréttir
|
25. apr. 2024
Reykir og Mið-Fossar
Forseti sækir hátíðarsamkomur í tilefni sumardagsins fyrsta.
Lesa frétt