Forseti á fund með hópi þýskra þingmanna frá Nordrhein-Westfalen sem heimsækir Ísland ásamt föruneyti. Á fundinum var rætt um samskipti landanna sem lengi hafa verið í farsælum farvegi. Þýskaland er mikilvægt viðskiptaland Íslands, íslenskir rithöfundar hafa notið þar mikillar velgengni og fjölmargir íslenskir tónlistarmenn hafa sótt sér menntun og verkefni í Þýskalandi. Forseti rakti einnig hvernig þýskir tónlistarmenn lögðu grunn að íslenskri tónlistarmenningu á fyrri hluta síðustu aldar og þakkaði fyrir þann ríka áhuga sem þýskt fræðasamfélag hefur sýnt íslenskri menningu. Fundinn sat jafnframt fráfarandi sendiherra Íslands í Þýskalandi, Gunnar Snorri Gunnarsson. Mynd.
Fréttir
|
26. ágú. 2016
Þýskir þingmenn
Aðrar fréttir
Fréttir
|
25. apr. 2024
Lýðheilsuverðlaunin 2024 afhent
Forseti afhendir Íslensku lýðheilsuverðlaunin í annað sinn
Lesa frétt
Fréttir
|
25. apr. 2024
Iceland Writers Retreat
Forsetahjón taka á móti þátttakendum ritlistarbúða.
Lesa frétt
Fréttir
|
25. apr. 2024
Reykir og Mið-Fossar
Forseti sækir hátíðarsamkomur í tilefni sumardagsins fyrsta.
Lesa frétt