Fréttir | 15. ágú. 2018

Opið hús á menningarnótt

Opið hús verður á Bessastöðum á menningarnótt, laugardaginn 18. ágúst, líkt og var á safnanótt í febrúar fyrr á árinu. Þá geta gestir skoðað Bessastaðastofu, móttökusalinn þar sem ríkisráð heldur fundi sína, og fornleifakjallara. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og verður opið frá kl. 12:00 til kl. 16:00. Upplýsingar um viðburðinn á vef menningarnætur. Fréttatilkynning um viðburðinn.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar