Fréttir | 11. des. 2018

Athvarfið Vin

Forsetafrú tekur á móti gestum athvarfsins Vinjar. Vin er athvarf fyrir fólk með geðraskanir, rekið af Rauða krossinum í Reykjavík sem fræðslu- og batasetur og er þar opið alla virka daga. Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun, draga úr endurinnlögnum á geðdeildir, efla þekkingu fólks á málefnum geðsjúkra og skapa umhverfi þar sem gagnkvæm virðing og traust ríkir.

 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar