Fréttir | 14. jan. 2019

Umhverfismál

Forseti tekur á móti sendinefnd um umhverfismál frá Hollandi. Gestirnir eru hingað komnir til þess að kynna sér hvernig Íslendingar hafa nýtt jarðvarma til húshitunar og rafmagnsframleiðslu. Jafnframt munu þeir kynna það sem þeir hafa fram að færa á sviði endurnýjanlegrar orku. Fyrir hópnum fara oddvitar orkumála í fjórum héruðum Hollands og skrifstofustjóri orku- og umhverfismála í efnahags- og loftslagsmálaráðuneyti Hollands.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar