Fréttir | 27. jan. 2019

Reykjavíkurleikarnir

Forseti flytur ávarp og afhendir verðlaun á Reykjavíkurleikunum, Reykjavík International Games. Á fimmta hundrað keppenda koma að utan til keppni á leikunum, auk um 2.000 íslenskra íþróttamanna. Leikarnir eru nú haldnir í 12. sinn og lýkur þeim um næstu helgi. Íþróttabandalag Reykjavíkur og sérsambönd Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands standa að leikunum ásamt íþróttafélögum í Reykjavík og ýmsum samstarfsaðilum.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar