Fréttir | 12. feb. 2019

Sendiherra Mósambíks

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Mósambíks, Florencio Joel Alberto Sele, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samstarf Íslands og Mósambíks, meðal annars þróunarsamvinnu í vatns-, salernis- og hreinlætismálum. Einnig var minnst á leiðir til að auka samskipti ríkjanna, meðal annars á sviði fiskveiða og jafnréttismála.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar