Fréttir | 19. mars 2019

Sendiherra Víetnams

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Víetnams, Pham Thanh Dung, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um útflutning sjávarafurða til Víetnams, iðnvæðingu landsins og möguleika á auknum viðskiptum ríkjanna samhliða þeim breytingum. Þá var rætt um þann fjölda Íslendinga sem á rætur að rekja til Víetnams

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar