Fréttir | 07. apr. 2019

Íslensk vika í verslunum

Forseti setur með formlegum hætti íslenska viku, kynningarátak um íslenskar vörur á boðstólum í matvöruverslunum hérlendis. Forseta var um leið afhent eintak bókarinnar Íslenskt – gjörið svo vel þar sem vakin er athygli á íslenskri framleiðslu á hinum ýmsu sviðum. Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins, Samtök verslunar og þjónustu og Bændasamtökin standa að átakinu Íslenskt – gjörið svo vel sem hófst í fyrra.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar