Fréttir | 30. ágú. 2019

Guðmundarlundur

Forseti vígir nýtt fræðslusetur í Guðmundarlundi, útivistarvin Kópavogsbúa í Heiðmörk. Forseti flutti ávarp, auk Ármanns Kr. Ólafssonar bæjarstjóra og Kristins H. Þorsteinssonar, formanns Skógræktarfélags Kópavogs sem fagnar í ár hálfrar aldar afmæli. Forseti flutti tvö ljóð sem báru sigur úr býtum í ljóðasamkeppni Yrkjusjóðs í hittifyrra. Sóley Anna Jónsdóttir úr Hrafnagilsskóla samdi ljóðið Haust og Álfdís Jónannsdóttir í Breiðagerðisskóla ljóðið Tónaskóg. Þau má lesa hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar