Fréttir | 03. sep. 2019

Geðheilbrigði

Forseti á fund með Eymundi L. Eymundssyni. Rætt var um geðheilbrigði, kvíða og félagsfælni, og leiðir til að hjálpa þeim sem á hjálp þurfa að halda í þeim efnum. Eymundur stofnaði ásamt öðrum Grófina, geðverndarmiðstöð á Akureyri. Grófin starfar samkvæmt hugmyndafræði valdeflingar sem lýtur að því að einstaklingurinn taki ábyrgð á eigin bata og öll vinna í þá veru fari fram á jafningjagrunni.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar