Fréttir | 17. sep. 2019

Sendiherra Króatíu

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Króatíu, frú Tina Krce, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um leiðir til að efla frekar viðskipti Íslands og Króatíu, og um sameiginlegar áskoranir í ferðaþjónustu og reynslu ríkjanna í þeim efnum. Þá var rætt um stöðu Króatíu í samfélagi þjóðanna, væntanlega formennsku ríkisins í Ráðherraráði ESB og framtíðarhorfur á Balkanskaga.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar